|
|
30.11.2008 06:46:51 / surtz
Hæ, er yfirleitt ekkert voðalega tilfynninganæmur og ég er fullur núna. En vá, ég sakna hans Sveppa míns. Sveppi, eða Sverrir eða það sem fólk vill kalla hann, var jafngamall mér. Hann var 86 módel. Sveppi minn dó úr hjartaáfalli 8 september á þessu ári. Mér finnst svo geðveikt sárt að þessi rosalega góði strákur skildi deyja svona skyndilega.
Man alltaf eftir því þegar ég byrjaði að vinna hjá Flytjanda og allir hundsuðu mann fyrstu dagana.. Nema hann Sverrir, hann spjallaði og sýndi mér hitt og þetta, enda búinn að vinna þarna "heillengi" fannst mér, 17 ára guttanum. Við Sveppi urðum góðir vinir þarna strax, enda var hann svo rosalega vingjarnlegur og góður við allt og alla. Man eftir því þegar ég skutlaði honum að sækja Twingoinn góða á verkstæði og við tókum reis til baka og ég klessti á hann og skemmdi báða bílana, haha. Hvað við vorum vitlausir þá!
Þegar hann Sverrir var tvítugur þá fékk hann hjartaáfall en með snarræði kærustunnar hans og sjúkraliða þá bjargaðist hann og lagðist inná sjúkrahús. Við Maggi úr vinnunni á flytjanda fórum til hans með Legó og Burger minnir mig við einskæra kátínu Sveppa og ég heimsótti hann nokkrum sinnum eftir það líka, enda var hann eini vinur minn í Reykjavík á þessum tíma.
Sveppa batnaði og hann hætti að drekka og reykja og fór að lifa lífinu til fullnustu. Hann var ótrúlega naskur á hvernig manni leið bara með því að tala við mann á msn og hann vissi alltaf hvað átti að segja til að hressa mann við, hvort sem það var að bjóða manni í partý eða byðja mig um að dreyfa bjór í bjórleiknum góða sem hann var með. Síðasta kvöldið með honum Sveppa mínum gleymi ég seint, hann bauð mér í kveðjupartý þar sem hann var að fara til Brasilíu. Ég mætti og skemmti mér konunglega. Ég hitti hann ekkert eftir að hann kom heim en ég talaði við hann á msn og hann virkaði hinn hressasti.
Núna 2 og hálfum mánuði eftir að Sveppi dó sé ég hversu sárt það er að þessi yndislegi drengur skuli hverfa á braut. Ég ef rosalega miður mín þegar ég hugsa til Sveppa, Völu (kærustunnar hans) og fjölskyldunnar. Sveppi átti marga vini og það sást í jarðaförinni. Rosalega falleg athöfn og alveg eins og Sveppi hefði viljað, músíkin og allt. Sakna þín að eilífu Sverrir minn!
Saknaðarkveðjur, Ársæll Rafn Erlingsson.
»
23.05.2008 16:39:26 / surtz
Ákvað að henda í eina færslu eða svo. Er kominn með gleraugu aftur, hvort sem það verður tímabundið eða ekki. Ætla að tékka hvort ég verði eitthvað gáfaðri við það. Ætla að rýna í einn texta hérna sem ég rakst á á www.live2cruize.com þar sem ég er virkur spjallverji. held að allir her þekki colin mcrae rallt sniling og saknihans en hann lést í þirlu slisi en það er samt maður sem vill reisa hann upp frá daúðum og það er ég. ég ælla að tilenka lifi minu adrenalini og vera níi colin lifa livinu í motorþinu no fear engin hrðsla ætla að endur vekja góðsögnina og verða ens og colin birja á því að taka alla hræðslu úr likamanum frara í flhlifa og teiju stök vil bara vita hvað margir stiðja mig
Þessi drengur er 17 ára eða á 17 ári. Þetta er einn versti texti sem ég hef séð skrifaðan. Er fólk ekkert að pæla í hvað það er að skrifa? eða pælir það í því og finnst þetta vera rétt? Ég hef séð marga með lesblindu bara einfaldlega vanda sig og losa sig við megnið af villunum. Þó að fólk sé lesblint þá þýðir ekkert að gefast upp. Langaði bara að deila þessu með ykkur, finnst þetta svo ljót afskræming á íslenskunni. Lag færslunnar: Apocalyptica með lagið I'm not Jesus Nýja dót færslunnar: Gleraugun Bíll færslunnar: Renaultinn hennar systu
»
01.05.2008 20:59:55 / surtz
Hæ Áskeli fannst hitt "bloggið" ekki nógu gott, verð að gera nýtt. Skelltum okkur á djammið í gær hérna á Skaganum. Langaði samt í bæinn en það var enginn driver. Var samt ágætt, var alltof fullur einsog svo oft áður. Fór í bæinn í morgun á fjölskylduhátíð Skeljungs. Virkilega gaman að vera þunnur á svona samkundu  Var fínasta skemmtun annars, hoppikastalar og tívolítæki. Grillaðar pulsur, kók og candyfloss í þunnkunni, gerist ekki betra. Svo fórum við Daníel á rúntinn í sólinni á Golfinum og fengum okkur snúning (bragðarefur) á Aktu taktu og reyndum við gellur. Svo var ég að skutla honum heim og var með bílinn í gangi fyrir utan þá sauð á Golfinum og vatn útum allt og svona flottheit  Meðan við vorum að bíða eftir að hann kólnaði skelltum við okkur inn í ps3 og í GTA4. Jesus fuck hvað þetta er svalur leikur. Mig langar svo mest að kaupa mér Playstation3 og þennan leik bara núna, eða xbox jafnvel, er heitur fyrir henni. But anyways, er að spá í að kíkja rúnt á Golfinum, hann er svo svalur  MSN vinir færslunnar: Inga og Skeli Músík færslunnar: Vinur minn hann JayZ Sjónvarp færslunnar: Hæðin, fínir þættir, bara soldið leiðinlegir Fílingur færslunnar: Klárlega þynnka Matur færslunnar: Kjötið sem mamma var að grilla Ciao!
»
30.04.2008 02:12:46 / surtz
Storytime, gjeggjað lag með Gorillaz  Once upon a time at the foot of a shit mountain, there
was a town where the people known as Happyfolk lived,
their very existence a mystery to the rest of the world,
obscured as it was by shit clouds. Here they played out
their peaceful lives, innocent of the litany of excess
and violence that was growing in the world below. To live
in harmony with the spirit of the mountain called Monkey
was enough. Then one day Strangefolk arrived in the town.
They came in camouflage, hidden behind dark glasses, but
no one noticed them: they only saw shadows. You see, without
the Truth of the Eyes, the Happyfolk were blind.
Falling out of aeroplanes and hiding out in holes
Waiting for the sunset to come, people going home
Jump back from behind them and shoot them in the head
Now everybody dancing the dance of the dead,
the dance of the dead,
the dance of the dead
In time, Strangefolk found their way into the high reaches
of the mountain, and it was there that they found the
caves of unimaginable Sincerity and Beauty. By chance,
they stumbled upon the Place Where All Good Souls Come
to Rest. The Strangefolk, they coveted the jewels in these
caves above all things, and soon they began to mine the
mountain, its rich seam fueling the chaos of their own
world. Meanwhile, down in the town, the Happyfolk slept
restlessly, their dreams invaded by shadowy figures digging
away at their souls. Every day, people would wake and
stare at the mountain. Why was it bringing darkness into
their lives? And as the Strangefolk mined deeper and deeper
into the mountain, holes began to appear, bringing with
them a cold and bitter wind that chilled the very soul
of them up. For the first time, the Happyfolk felt fearful
for they knew that soon the Monkey would soon stir from
its deep sleep. And then came a sound. Distant first,
it grew into castrophany so immense it could be heard
far away in space. There were no screams. There was no
time. The mountain called Monkey had spoken. There was
only fire. And then, nothing.
O little town in U.S.A, your time has come to see
There's nothing you believe you want
But where were you when it all came down on me?
Did you call me now? Hérna er þetta á youtube, getið heyrt lagið þar.
http://www.youtube.com/watch?v=T1rnpLIlTjc Takk og bless, Dr. Sæli og Mr. John
»
11.03.2008 19:31:18 / surtz
Hæ Bara blogg og allt. Hef verið að pæla í þessu í soldin tíma, búið að breyta blogcentral og allt. Orðið svona tölvufötlunar vænt. Líst vel á þetta. Keyrði útaf á fimmtudaginn. Ég veit, kemur á óvart. Polo skemmdist samt ekkert mikið, kíkti á þetta núna áðan almennilega, bara smá skemmd í framstuðaranum og það þurfti að rétta felguna. Ótrúleg heppni. Missti bílinn að aftan, snerist 180 gráður og rann afturábak útaf á 70km/h, bíllinn snerist þá aftur hundrað og áttatíu gráður og ég bombaði á hestaveg. Var alveg fínasta adrenalín sjokk þó að maður eigi nú að heita vanur Er að fara að vinna á skólaballi sem dyravörður annað kvöld og fimmtudagskveld. Böns af léttklæddum smápíkz er maður að heyra, giggedý! Vantar bara honduna, hlírabolinn og tanið, þá er ég góður. Það er reyndar til mynd af mér í hlírabol. Ég er alveg dead sexý. En ég er að spá í að hafa þetta ekkert lengra í bili, kannski að maður hafi nennu í að halda þessu við eitthvað. Sjónvarp færslunnar: Veðurfréttir (skítlegt veður framundan) Maður færslunnar: Sigmundur Ernir vinur minn Lag færslunnar: Escape með Hoobastank Tónlist vikunnar: Best of Red hot chilli peppers Adios
»
10.12.2007 16:39:20 / surtz
Hæ Er ekkert duglegasti bloggari í heimi en ég reyni samt. Hef bara svo sjaldan eitthvað til að skrifa um, geri aldrei neitt spennandi. Er td. veikur núna, ekkert að gera. Var að vinna um helgina. Brjálað að gera, opið til 22 í Smáralindinni og komu örugglega flestir við í Select að kaupa pylsur eða rúðuvökva. Var vægast sagt brjálað að gera á laugardaginn en aðeins minna á sunnudaginn. En það var samt bara gaman í vinnunni, var að vinna með svo skemmtilegu fólki. Líka þegar mikið er að gera þá líður tíminn rosalega hratt. Jólin eru að koma, finnst það magnað. Ekki nema 2 vikur í jólin og 3 vikur í nýtt ár. Þetta ár sem er að líða er búið að vera rosalega fljótt að líða. Ég er að eldast, nenni því ekki. Samt kannski öruggelga fínt, þroskast kannski einhverntíma með aldrinum, efast samt um það. En já, jólin. Ég elska þennan tíma alveg hreint. Hef rosalega gaman af því að fá pakka og gefa þá. Er reyndar bara búinn að kaupa brot af gjöfunum sem ég ætla að gefa. Keypti í gær handa Guðmundi litla frænda alveg heví svala gjöf sem á eftir að gleðja pabba hans alveg jafn mikið örugglega Ætla samt ekki að segja hvað það er efað systir mín skildi nú álpast inná síðuna. Ég hef voðalega fátt að segja þessa stundina. Er samt kominn í jólafíling og er að fara að henda upp seríum á eftir. Búinn að skreyta á svölunum hjá okkur en ekkert meira en það. Henti inn nýrri skoðanakönnun. Ég er ekkert kominn í neinn blússandi jólafíling en þetta er allt að koma. Niðurstöður síðustu könnunnar voru sláandi! En 101% kjósenda kusu Úrslitin voru þessi: Nenni ekki að hafa þetta lengra. Lög færslunnar: Leaves - Good enough og The spell Tónlist færslunnar: Jólatónlist Ófílingur færslunnar: Veikindi Skemmtun færslunnar: South park fóshjó Msnarar færslunnar: Unnur og Áskell Sayonara!
»
26.11.2007 21:03:05 / surtz
Hæbb Tvær vikur frá síðustu færslu. Hefur samt sáralítið gerst á þessum 2 vikum. Bara vinna, sofa og éta. Hetja, kisan mín, fór í sprautu á fimmtudaginn. Fór í sprautu til að hún hætti að breima og vesenast. Svo fékk hún ormalyf líka. Meðan allir hinir kettirnir snéru sér undan með viðbjóði af bragðinu af ormalyfinu sleikti Hetja bara útum og vildi meira Hérna er mynd af mér og Hetju   Var edrú á laugardaginn, það var spes. Var bara heima, skellti mér á vídjóleiguna og fór svo í playstation einn með sjálfum mér. Var alveg fínt sko, en samt skemmtilegra að gera ekki neitt með einhverjum. Svona svipað og ég og Áskell í gær, vorum ekki að gera neitt heima hjá honum, eða svona svo gott sem ekki neitt, vorum á msn og í playstation, það var alveg tussugaman. Við Hansi héldum matarboð síðustu helgi. Vorum með graflax í forrétt (rosalega vel skorinn niður), kindalundir með bökuðum kartöflum og salati í aðalrétt og svo eplapæ með ís í eftirrétt. Komment einsog til dæmis "stórfenglegt" "betra en fullnæging" og "strákar, þið eruð unaðslegir mmmmm", fengu að fljúga þarna þetta kvöld (ég var smá fullur, man kannski ekki alveg rétt  ). En kvöldið heppnaðist rosalega vel og var stofnaður matarklúbbur á staðnum og bíð ég spenntur eftir boðskorti í næstu veislu  Held að ég nenni ekki að hafa þetta lengra í bili, komið alveg ágætt, fyrsta skiptið meira að segja sem að ég set mynd með færslu. Tónlist færslunnar: Skytturnar Lag færslunnar: Guðlast með Skyttunum ásamt A-ess Skemmtun færslunnar: Playstation, fóshjó bleee
»
12.11.2007 08:55:35 / surtz
Hæ Soldið síðan ég bloggaði síðast, hef þó þá afsökun að ég hef verið upptekinn. Var að vinna á föstudag í Shell frá hálf 8 til 13 og síðan á Galito frá 17 til 21 og síðan sem öryggisvörður ó Select í breiðholti frá 12 til 7 um morguninn. Það var alveg í lagi, vaknaði ferskur klukkan 5 um daginn. Fór þá bara á rúntinn og svona og svo í partý til Möggu Elfu. Fór þaðan um 11 leitið um kveldið þar sem að ég var búinn að lofa mér í vinnu hjá ICE security aftur þarna í Select breiðholti. Var þar til 7 um morgun og fór þá beint í Shell í smáranum þar sem að ég vann alveg eiturhress til rétt rúmlega 8 um kvöldið. Fólk hélt að ég væri eitthvað klikkaður, haha. Held að ég taki ekki svona vinnutörn aftur í bráð, en þetta er ágætt, eyddi ekki í neitt annað á meðan Var að vakna núna um 8 leitið alveg að drepast í bakinu þar sem að ég sofnaði eitthvað vitlaust. Er samt að fara að skríða upp í rúm aftur þar sem ég fer ekki að vinna fyrren hálf 4. Það verður djammað næstu helgi, missti alveg af svoleiðis þessa helgina. Verður opnað Breiðina aftur og svona flottheit. Minns og Hans að fara að halda matarboð fyrir gamla vinahópinn. Baaara fínn matur sem ég vona að heppnast allt vel enda ætla allir að koma sem við buðum, verðum 12 samtals. Verður örugglega bara gaman, og að þurfa ekki að enda djammið á mörkinni verður gott, eins ágætur og sá staður er þá veitir ekkert af allavega 2 í viðbót. En þetta er komið alveg ágætt í bili, er orðinn sybbinn aftur. Tónlist Færslunnar: Looptroop Lag færslunnar: Heavy Rains með Looptroop Föt færslunnar: Bara nærbuxur  Tölva Færslunnar: Nýji Toshiba lappinn minn Bæææ
»
28.10.2007 21:52:46 / surtz
Hey there! Var að koma heim úr vinnunni, alveg eiturferskur. Ég nota þetta orð mikið, eiturferskur. Sagði þetta við einn viðskiptavin í dag og hann var bara hissa á þessari orðasamsetningu  Ég skil ekki fólk sem gefur skít í vinnuna sína þegar það er að hætta. Það er að skemma svo mikið fyrir sjálfu sér. Það er til dæmis einn maður hjá mér í vinnunni sem er á næturvöktum og hann er að hætta. Honum er orðið svo sama að það er alveg skelfilegt að taka við vakt eftir hann, allt útum allt og ekki búið að vinna helminginn af verkunum sem að hann á að gera á vaktinni. Það bitnar að sjálfsögðu á okkur hinum þannig að við kvörtum í yfirmanninn og það gerir það að verkum að maðurinn á ekki eftir að fá nein meðmæli úr þessari vinnu. Alveg skelfilegt að fullorðið fólk skemmi fyrir sjálfu sér með svona asnaskap. Talandi um fullorðið fólk. Sumt fólk kann ekki að keyra. Var á leiðinni úr vinnunni áðan og ég er að keyra á eftir nýlegum Land Cruiser. Það er ekki frásögum færandi nema að í göngunum fer þessi á Cruisernum fer að keyra alltaf öðru hvoru yfir á hinn helminginn og alltaf til baka þegar hann mætir einhverjum. Það munaði svo litlu í eitt skiptið, ég hélt að það yrði árekstur. Svo á leiðinni upp þá keyrði ég vinstra meginn og fór frammúr Cruisernum og lenti þá á eftir Ford F150 sem gerði nákvæmlega það sama og Cruiserinn. Báðir þessir gaurar voru kringum fertugt, ekki unglingar og ekki gamalmenni. Svona gaurar eiga heima í kornflexpakka en ekki á vegunum okkar. Þarf að koma svona gaurum úr umferð. Mætti halda að þessir kappar haldi bara að þeir séu einir í heiminum þegar þeir keyra. Setjist bara uppí dýra jeppann sinn og gleymi að það er til fleira fólk. Þarf að fara með svona gaura í ökukennslu aftur. En nóg væl í bili, langaði bara að koma þessu frá mér. Tónlist færslunnar: Arctic Monkeys Sjónvarp færslunnar: Næturvaktin Msn fólk færslunnar: Júllý, Daníel, Inga, Sveppi og Kristín systir. Fílingur færslunnar: Þreyta, það er stundum gott að vera sybbinn. Bæbb!
»
16.10.2007 13:28:09 / surtz
Hola Ákvað að blogga víst ég hef ekkert betra að gera þar sem að ég er veikur heima bara. Alveg skelfilegt að vera svona slappur. Helgin var alveg ágæt, fyllerí á föstudag sem endaði í slagsmálum og látum Ekki það að ég sé vanur því en þessir pólverjar fóru óeðlilega mikið í taugarnar á mér. Ég var bara að tjilla og fara að pissa þegar einn af þeim ýtir í mig og labbar svo burt. Ég, kominn soldið í glas, tek ekki vel í það og stekk á eftir honum og hrindi honum. Við það koma 2 pólverjatappar í viðbót og ætla í mig en Áskell stekkur á annan þeirra og fleygir honum yfir borð Svo er eitthver handalögmál en síðan er þessum guttum bara hent út. Annar þeirra endaði á að lemja til eins barþjóns sem var að vinna þarna og hitti hana í bringuna þannig að hún missti andann. En þetta var bara gaman þó að ég muni varla neitt eftir þetta. Laugardagur fór að mestu í þynnku og að vinna á galito og svo fór ég bara snemma að sofa. Fór svo að vinna á sunnudag þar sem að konan sem var með helgina var lasin. Var fínt að vinna bara á sunnudag. Fór snemma að sofa um kvöldið og vaknaði veikur í gær og fór ekki að vinna. Fór svo snemma að sofa til að vera ferskur í dag en allt kom fyrir ekki og ég er verri í dag ef eitthvað er. Verð vonandi orðinn frískur á morgun til að ég geti farið að vinna. Næsta helgi verður góð en þá er stefnt á jeppaferð með Shell. Þar sem að bíllinn minn er langt frá því að vera tilbúinn fæ ég Hiluxinn hjá Gaua frænda lánaðann og verð svaka jeppakall um helgina Þetta er alveg 3ja daga ferð, það verður gist í skálum og svona. Mig hlakkar til, enda fyrsta jeppaferðin þar sem að ég keyri. En þessi færsla nær ekki mikið lengra. Mynd Færslunnar: The Truman Show Lög Færslunnar: Soulmates með Natöshu Bedingfield, Delilah með Plain white T's og diskurinn með Sprengjuhöllinni Fílingur Færslunnar: Svefn, lítið annað að gera Bæbb
»
09.10.2007 17:35:11 / surtz
Hæ! Ég er alveg ótrúlega svekktur og bitur í dag. Fór til Hólmavíkur á fimmtudag (já! það er ógeðslega langt!). Fór að ná í mótor, gírkassa og dekk undir súkkuna mína. Jújú, ferðin gekk vel, ég kom við hjá Lexa uppí Bifröst og var kominn heim um 9 leitið. Við mamma fórum svo austur í gær í þeum tilgangi að sækja jeppann. Ég tók kveikjuna af nýja mótornum með þar sem að það er það eina sem mig vantaði til að koma bílnum í gang. Svo þegar við komum austur og við Nonni frændi vorum að koma þessu í þá passaði kveikjan ekki.. Dæmigert alveg. Ég er samt ekki búinn að gefast upp, enda þýðir það ekkert. Ætla að finna kveikju í bílinn þó að ég þurfi að hringja stanslaust í heilan dag eftir þessu dóti. Er samt búinn að vera skítfúll í dag, hef ekki einu sinni farið í föt Ég hef komist að því að ég er eiginlega algjört jólabarn, mig er farið að hlakka til jólanna alveg ótrúlega mikið, spes, ég veit. Jólin í fyrra voru frekar awesome, góðar gjafir og góðir tímar með fjölskyldunni á daginn og svo playstation og bjór á kvöldin og nóttunni. Býst við því að jólin núna í ár verði bara svipuð. Áramótin í fyrra voru líka alveg klikkuð, djamm út í gegn hjá mér og Áskeli sem endaði með því að við átum alltof mikið af kalkún, haha. Áramótin núna verða alveg örugglega svipuð, ef ekki betri. Fer 1sta janúar, strax eftir djamm til Danmerkur með Galito staffinu! Verður pottþétt fjör. Smá pæling með þennan texta hérna: Þú notar alla þína fokkin frasa þegar dauðinn kemur ertu alltaf einn mundu, líkkistur eru ekki með vasa þótt á stefnumót er dauðinn aldrei of seinn. þetta er Bubbi sem að syngur þetta í lagi með Poetrix. Hvað á maður að gera með vasa í líkkistum?! Meikar ekkert sens fyrir mér. Anyways, verður ekki lengra að sinni Lög færslunnar: Late Night Romance með Civil Fool og Verum í sambandi með Sprengjuhöllinni Föt færslunnar: bara bolur og nærbuxur, nenni ekki í föt Sjónvarp færslunnar: Vörutorg baby! bææ!
»
07.10.2007 22:52:37 / surtz
Var að lesa gömul blogg eftir mig og komst að því að maður var
miklu betri í þessu back in the days. Þarf að fara að taka mig
á.
En hérna er eitt af mínum uppáhaldsbloggum Getið
tékkað á eldri bloggum þarna niðri og til hægri.
Sælar!
Helgin var bara nokkuð góð. Fór í ultramegaævintýraroadtrip
með Hansa á laugardaginn og svo bíó á awesome mynd. Svona þegar ég
fer að pæla í því þá var þetta ekkert svo góð helgi.. bara
laugardagurinn 
Before the road trip:
Ég vaknaði eldsprækur á laugardagsmorgni kl. hálf 10 og
ákvað að fara út að hlaupa (ég veit.. WTF??). Strax og ég var búinn
í sturtu vissi ég að þetta yrði fínn dagur og reyndi að hringja í
Lexxa, mann síðustu færslu, því að hann ætlaði með mér í sveitina
að ná í tankinn úr Lancernum. En allt kom fyrir ekki og hann
vaknaði ekki sama hvað ég hringdi oft, dauðarokkarar þurfa að sofa
líka víst Ég ákvað þá að hringja í Steina því að ég veit
að hann er alltaf geim í svona en nei! hann er bara í New York
að leika sér! nennti ekki að koma heim til að fara í sveitina
með mér. Ég talaði svo við hana Þórhildi þar sem ég veit að
hún er alltaf til í að hjálpa mér og viti menn, hún var til!
En þegar hún kom heim fékk ég sms frá henni um að hún væri svo
þreytt og eitthvað og nennti ekki.. svikari. Þannig að ég
plataði Hansa þunna með mér 
Da road trip:
Lögðum af stað þarna um hálf 3 eða eitthvað frá Skaganum og
ákváðum að fara Lyngdalsheiðina (þarna um Þingvelli og þar). Ég
fékk að keyra frá Þingvöllum og þar og í sveitina þar sem það eru
engar löggur þar. Þegar við vorum komnir gegnum Þingvelli og að
heiðinni blasti við okkur þetta líka fína Vegagerðaskilti sem á
stóð: "Ófært - Impassible". Við virtum skiltið að vetthugi enda á
Opel R3m4x sem að kemst allt. Fyrst hlógum við að þessum
vegagerðarösnum að segja að þetta væri ófært En svo fór að koma snjór og holur og vesen
en án hiks þrumaði ég gegnum þetta allt af stakri prýði einsog
próflausum manni sæmir. Reyndar þarna í lokin þurfti ég að
hreyfa við bjargi einu sem var í vegi okkar en það var ekki
mikið mál fyrir mig þar sem ég er alltaf að lyfta En við komumst klakklaust gegnum þetta nema að
rúðupissið var búið og ég þurfti að ræna Pepsíinu hans Hansa
til að þrýfa rúðuna en eftir það var rúðan rosalega klístruð
og eiginlega meirihlutinn af bílnum líka 
Heimleiðin:
Við fórum nú venjulegu leiðina heim og fórum bílasölurúnt á
Selfossi og á rúntinn og svona líka. Svo fórum við í bæinn og
hittum þar Þórhildi og Láru og við fórum í bíó á myndina Lucky
Number Slevin sem er awesome mynd. Þar hittum við einnig Dodda E,
Önnu Maríu pönnuköku og Arnar. Það var reyndar hringt í mig í
hléinu og fært mér þær gleðifregnir að ég yrði að vinna daginn
eftir, jibbí!!
*væmnismodeon*
Þetta var alveg fínasta road trip sem endaði vel í góðum
vinahópi
*væmnismodeoff*
Maður færslunnar: Hansi, fyrir að nenna með mér í
ultramegaævintýraroadtrip
Hljómsveit færslunnar: Coldplay, hlustaði á þá alla
færsluna
Lag helgarinnar: Jan Mayen með lagið Nick Cave
Lag vikunnar: Guðlast með Skyttunum (síðustu viku
ss)
Dagar í bílpróf: 44 ef að ég hef talið rétt, sem ég gerði
ekki í síðustu færslu 
»
23.09.2007 21:27:24 / surtz
Dagurinn í dag
Í dag var ég þunnur
Í dag vaknaði ég alltof snemma
Í dag var ég vakinn af vinnunni
Í dag fór ég að vinna
Í dag fór kötturinn minn að breima aftur
Í dag var ég þreyttur
Í dag settum við hansi svuntuna undir bílinn hans
Í dag fékk ég mér skútupylsu
Í dag sá ég Pétur beran að ofan
Í dag langaði mig ekkert í vinnuna
Í dag vann ÍA
Í dag sá ég Dumb and Dumberer
Í dag keyrði ég í 39 m/s á kjalarnesi
Ágætis dagur bara allt í allt. Er farinn að sofa núna, er
geðveikt sybbinn.
Gn peepz
»
21.09.2007 12:00:43 / surtz
Franz Ferndinand - You Could Have It So Much Better The last message you sent said I looked really down that I oughta come over and talk about it well I wasn't down I just wasn't smiling at you as I look at us now it seems that you're slapping my back as if it's alright but its not.
I'm trying to get up but you're pushing me down so I'll get up on my own
Now there's some grinning goon on my TV screen telling us all that it's alright because she wears this and he said that and if you get some of these it'll all be alright well I refuse to be a cynical goon passing the masses an easy answer because it won't be alright oh no it won't be alright it won't be alright unless you get up come on and get up
Well I'm just a voice in your earpieces telling you no it's not alright you know you could have it so much better you could have it so much better if you tried. Finnst þetta góður texti
»
17.09.2007 16:05:36 / surtz
Hæbb Er í alveg ágætis fíling í dag. Hef ekkert að gera, nenni ekki að gera neitt og þarf ekki að gera neitt. Alveg ágætis staða sem maður er í. Hennti upp annari skoðanakönnun. Mér finnst skoðanakannanir leiðinlegar að því leiti að það er oft svo erfitt að finna sitt svar í kannski 10 möguleikum. Þessi er einföld og ætti því ekki að vefjast fyrir fólki, bara einfaldlega, eru skoðanakannanir leiðinlegar? Þá er þessi ekki tekin með sko, ég veit að þessi er frekar skemmtileg. Fór á djamm á föstudag. Lenti í sleik við strák.. man ekkert eftir því. Ég held að ég hafi samt ekki fílað það. Var samt hörkustuð, var poolmót og bjórkvöld www.live2cruize.com . Endalaus drykkja og alveg sjúklega gaman. Dagurinn eftir var nú ekkert spes. Fór í vinnuna kl. hálf 8 á laugardagsmorgun, var líklega ennþá frekar fullur þegar ég mætti. Var það samt ekki lengi, varð þunnur fljótlega og var það alveg rosalega þynnka alveg allan daginn. Held að þetta tengist karma einhvernveginn, þú uppskerð einsog þú sáir, haha. Nenni varla að hafa þetta lengra, er að fara að vinna eftir smá á Galito. Tónlist færslunnar: Smashing Pumkins Bíll færslunnar: Poloinn, virkar þó að ég fari illa með greyið Matur færslunnar: Pönnukökurnar hennar mömmu og mjólk Bæbb ps. verið nú dugleg að kommenta
»
Síður: 1 2 3 4
|
|